20. ágúst 2010
Bók vikunnar hjá Safnahúsi Borgarfjarðar.
Viltu, góða vina mín,
um vorsins glaða stund
sigla hjá mér sjóinn á,
er sólin kveður grund
og hafið bláa blundar vært,
en blærinn andar rótt?
Þá siglum við til vonalands
og vökum þar í nótt.
Ég sé að heillar huga þinn
sá hreini, víði mar,
því ástarblíðu augun þín
við öllu gefa svar.
En veistu, kæra vina mín,
hvar vonarlandið er?
Ég fann það út við ystu höf
og umgyrt bláum ver.
Erindin eru úr kvæðinu Undralandið sem finna má í kvæðabókinni Um dægur löng eftir Einar Beinteinsson frá Grafardal í Hvalfjarðarstrandarhreppi (nú Hvalfjarðarsveit).
Inn á vef Safnahúss Borgarfjarðar (www.safnahus.is, smella á bókin til hægri á forsíðu) er nú komin lítil kynning um skáldskap Einars Beinteinssonar frá Grafardal, síðar Draghálsi í Hvalfjarðarstrandarhreppi, en í ár eru liðin hundrað ár frá fæðingu hans en Einar var einn af systkinunum skáldmæltu frá Grafardal, en systkini hans voru meðal annarra Sveinbjörn Beinteinsson fyrrum allsherjagoði, Halldóra B. Björnsson og Sigríður Beinteinsdóttir sem lengi bjó á Hávarðsstöðum.
Til baka