9. júlí 2010
Epla- og kirsuberjaræktun í Álfholtsskógi
Nú í vor var gerð tilraun með nýjar trjátegundir og prufað að setja niður epla- og kirsuberjatré í Álfholtsskógi og verður gaman að sjá hvort sveitungar í Hvalfjarðarsveit geti gætt sér á eplum og kirsuberjum eftir nokkur ár sem framleidd eru í heimabyggð.
Bjarni Þóroddsson fór með Björn Valsson flokksstjóra hjá Hvalfjarðarsveit í leiðangur um skóginn og sýndi honum áhugaverð tré og staði.
Skógurinn á sér langa sögu allt frá árinu 1940 þegar fyrstu tréin voru sett niður og til dagsins í dag þegar búið er að bæta ávaxtatrjám í flóruna.
Bjarni sýndi Birni meðal annars Fjallarós, Broddfuru, Lindfuru, Hrossakastaníu, Eik, Hlyn, Hegg, Rósakirsuber, innflutta bláberjaplöntu ásamt Þin sem er lúxusjólatré.
Skógarþrestir ,Auðnutittlingar og Glókollur fylgdu þeim eftir með viðeigandi söng. Sum tréin eru byrjuð að sá sér (Birki, Stafafura, ..) og þá má sjá lítil tré koma upp og þarf þá að gæta vel hvar maður stígur niður.
Ef fólk vill kynna sér skóginn frekar getur það haft samband við Bjarna í síma 899-7328 og hann mun taka ykkur í skoðunarferð.
Á myndinni eru þeir Bjarni Þóroddsson og Guðjón Guðmundsson við plöntur sem bíða eftir gróðursetningu
Björn þakkar skemmtilega skoðunarferð
Björn Páll Fálki Valsson flokkstjóri hjá Hvalfjarðarsveit.
Til baka