2. júlí 2010
Menntamálaráðherra færði leikskólanum Grænfánann
Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og Orri Páll Jóhannsson verkefnisstjóri Skóla á grænni grein hjá Landvernd færðu leikskólanum Skýjaborg Grænfánann í dag í tilefni af því að leikskólinn er hundraðasti skólinn á Íslandi til að flagga Grænfánanum. Aðeins tók leikskólann ár frá því að hann sótti um að verða Skóli á grænni grein þar til fáninn var í höfn. Margmenni var við athöfn við leikskólann þar sem Katrín og Orri léku sér með leikskólabörnum að fánanum og útskýrðu fyrir þeim þýðingu hans.
Birna María Antonsdóttir óskaði leikskólanum til hamingju með áfangann fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar og færði leikskólanum táknræna gjöf, lítið grenitré sem fær að vaxa og dafna á lóð leikskólans til framtíðar.
Myndir frá afhendingunni og athöfninni í myndaalbúmi.
Skrifstofa.
Til baka