18. maí 2010
Gangið með okkur í sumar
Í sumar mun Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar halda áfram að hvetja til hollrar hreyfingar og útivistar.
Ráðgert er að bjóða upp á göngur um fjöll sveitarfélagsins nokkra sunnudagsmorgna og munu göngurnar taka um 2-3 tíma fyrir utan síðustu göngurnar.
Skipulagið er sett upp með fyrirvara um gott gönguveður og verða brottfararstaðir og tímasetningar auglýstar síðar. Við hvetjum alla til að taka frá þessa daga og fylgjast með auglýsingum á vef Hvalfarðarsveitar.
30.5.2010 Miðfellsmúli
6.6.2010 Þúfufjall
27.6.2010 Þyrill
4.7.2010 Háihnúkur
25.7.2010 Glymur
15.8.2010 Heiðarhorn
29.8.2010 Leggjarbrjótur
Tilkynning frá Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar.
Til baka
Gott mál.
- 19.5.2010 12:44:45
Þetta er frábært.
:-)
Ása
Glæsilegt framtak!! Ég reyni að nýta mér þetta :)
Guðrún
Frábært :)
- 19.5.2010 14:28:56
Ég ætla að reyna að mæta í eins oft og ég get ;)
Mæja Pæja