Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2009 var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar þann 13. apríl sl. og var hann samþykktur við seinni umræðu þann 20. apríl sl.
Niðurstaða ársreiknings Hvalfjarðarsveitar fyrir 2009 sýnir góðan rekstur á árinu og afar sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í árslok. Rekstrarafgangur ársins nemur 121,7 milljónum króna eða um 22,5% af rekstrartekjum. Allar kennitölur bera vott um góða fjármálastjórn og traustan rekstur.
Rekstrartekjur ársins nema samtals 540 millj. kr. og voru um 50 millj. hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
Rekstargjöld námu 452 millj. lækkuðu um 6 millj. kr. frá árinu 2008 þrátt fyrir verulegar verðlagshækkanir milli ára, sem sýnir að þær aðhalds- og hagræðingaraðgerðir sem sveitarstjórn samþykkti við gerð fjárhagasáætlunar fyrir árið 2009 hafa skilað sér eins og til stóð. Til fræðslumála sem er langstærsti málaflokkurinn var varið 250 millj. sem eru 46,3% af tekjum sveitarfélagsins en áætlunin gerði ráð fyrir 257.8 millj. eða 7 millj. hærri upphæð.
Veltufé frá rekstri nam 134,7 millj. kr., eða 24,9% af rekstrartekjum. Heildarfjárfesting ársins nam 166,1 millj. kr.
Handbært fé í árslok nam 211,4 millj., sem sýnir góða lausafjárstöðu sveitarfélagsins þrátt fyrir miklar fjárfestingar á árinu.
Veltufjárhlutfall var 5,23 og eiginfjárhlutfall 0,97og Íbúar voru 626 í árslok 2009.
Megin niðurstaða efnahagsreiknings er að fastafjármunir nema 1.385 miljónum og eignir samtals 1.646 millj.kr. en skuldir og skuldbindingar nema samtals 51,5 millj. Eigið fé sveitarfélagsins var í árslok 1.594,4 millj. kr. eða um 97% af heildarstöðu efnahgasreiknings.
Sköttum og þjónustugjöldum er stillt í hóf og er Hvalfjarðarsveit eitt fárra sveitarfélaga sem ekki fullnýtir heimild til álagningar útsvars.
Hvalfjarðarsveit leggur áherslu á fjölskylduvænt samfélag og er bygging nýs grunnskóla, Heiðarskóla á árunum 2010 og 2011 hluti af þeirri stefnumörkun. Sveitarfélagið leggur áherslu á að hafa nægjanlegt framboð af íbúðalóðum og atvinnulóðum og vill með því laða að nýja íbúa að Hvalfjarðarsveit.
Við gerð ársreiknings fyrir árið 2009 var jafnfram horft til hins góða árangurs sem náðst hefur í rekstri Hvalfjarðarsveitar frá þeim tíma að hið nýja sveitarfélag tók til starfa.
Við samanburð á milli ára er ekki marktækt að taka árið 2006 með í samanburð vegna allra þeirra bókhaldslegu samkeyrslna sem þurfti að gera á sameiningarárinu og að auki var bókhald Heiðarskóla og bókhald Sýjaborgar ekki með Hvalfjarðarsveit árið 2006.
Meðfygjandi eru nokkrar töflur sem sýna svo að ekki verður um villst að mikill árangur hefur náðst í rekstri Hvalfjarðarsveitar, kostnaður af rekstri fer lækkandi. Með auknu aðhaldi í rekstri hafa skapast tekjur í sjóði sem varið verður til nýframkvæmda við nýjan Heiðarskóla.
Þessi aðhaldsemi og útsjónarsemi í rekstri gerir það að verkum að Hvalfjarðarsveit þarf að taka minni fjármuni að láni til þess að standa straum að nýbygginunni.
Ársreikningur 2009, samanburður á milli ára. (Unnið af Jóhanni Þórðarsyni, Endurskoðunarskrifstofu JÞH)
Sveitarstjóri.