3. febrúar 2012

Frá ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar

Á mánudögum kl. 16:15-17:00 verður opið í íþróttasal fyrir börn á leikskólaaldri og foreldra þeirra. Foreldrar geta komið með börnum sínum og átt skemmtilega íþróttastund í boltaleikjum, þrautabraut o.fl. Sundlaugin opin.

Á mánudögum og miðvikudögum milli kl. 19:30 og 20:30 er leikfimi að hætti Helgu Harðardóttur. Hægt er að skrá sig hjá Helgu í s. 699 3062 eða á staðnum. Allir velkomnir. Sundlaugin opin.

1. febrúar 2012

Opnunartími Heiðarborgar - breyting

Framvegis verður lokað á föstudögum. Í staðinn lengist opnunartími mán, þri, mið. og fim um klukkustund. Opnunartími verður því frá 1. febrúar 2012 sem hér segir:

  • Mánudagar kl. 16.00 – 21.00

  • Þriðjudagar kl. 16.00 – 21.00

  • Miðvikudagar kl. 16.00 – 21.00

  • Fimmtudagar kl. 17.00 – 22.00

  • Föstudagar: lokað 

31. janúar 2012

Dagur kvenfélagskonunnar

Á morgun miðvikudaginn 1. febrúar nk. er Dagur kvenfélagskonunnar.
Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar í tilefni af 80 ára afmæli KÍ árið 2010. KÍ var stofnað árið 1930  þá þegar höfðu verið stofnuð nokkur héraðssambönd kvenfélaga á Íslandi en fyrsta kvenfélagið var stofnað árið 1869, Kvenfélag Rípurhrepps í Skagafirði.

30. janúar 2012

Dagur leikskólans

Mánudaginn 6. febrúar  verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins.  6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.  

 

 

30. janúar 2012

Lífhlaupið

Lífshlaupið verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar n.k. Um 16.400 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um rúmlega 3000 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:

  • vinnustaðakeppni frá 1. – 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 1. – 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
  • 27. janúar 2012

    Tilkynning til fasteignaeigenda um álagningu ársins 2012

    Hvalfjarðarsveit tilkynnir hér með að einungis verða sendir út álagningarseðlar  í bréfpósti fyrir árið 2012 til fasteignaeigenda 67 ára og eldri.  Aðrir fasteignaeigendur  fá ekki sendan álagningarseðil í bréfpósti heldur verður það gert með þeirri nýbreytni að nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðil sinn þegar þeim hentar á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is. 

    23. janúar 2012

    Fundur í sveitarstjórn fellur niður

    Sveitarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 17. janúar sl. að fella niður sveitarstjórnarfund sem halda átti þann 24. janúar, á morgun þriðjudag.

    Þetta tilkynnist hér með fyrir hönd oddvita.

     

    Sveitarstjóri

     

    23. janúar 2012

    Prjóna og handverksfólk í Hvalfjarðarsveit

    Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.

     

    Nú ætlum við að byrja að prjóna miðvikudaginn  25 janúar. Kl 19:30 og eitthvað frameftir kvöldi, að Laxárbakka.


     

                                  Með von um að sjá sem flesta
                                   María Lúísa og Vigdís
                                   p.s. Kaffi og gos til sölu á staðnum.
     

    Atburðadagatal

    S
    M
    Þ
    M
    F
    F
    L
    29
    30
    31
    1
    2
    3
    4

    5
    6
    7
    8
    9
    10
    11

    12
    13
    15
    16

    19
    20
    22
    23
    24
    25

    26
    27
    28
    29
    1
    2
    3

    4
    5
    6
    7
    8
    9
    10

    Fyrri mánuður
    febrúar 2012
    Næsti mánuður